Fagmenn í fasteignum
Meistarar í mannvirkjum

Faglegt mat fyrir örugg og upplýst fasteignaviðskipti

Ástandsskoðun er lykilþáttur í öruggum fasteignaviðskiptum. Við skoðum eignir vandlega til að greina styrkleika og veikleika sem geta haft áhrif á verðmat, samninga og framtíðaráætlanir. Markmiðið er að veita þér raunhæfa og hlutlæga mynd af ástandi eignarinnar áður en ákvörðun er tekin.

Veldu þá þjónustu sem hentar þínum þörfum:

Án skýrslu:

Hentug fyrir hraða yfirferð. Við förum yfir helstu atriði eignarinnar og miðlum niðurstöðum munnlega.

Með skýrslu:

Ítarleg skoðun sem skilar sér í skriflegri skýrslu með myndum, lýsingu á ástandi og faglegri greiningu.

Helstu kostir ástandsskoðunar:

Greining á göllum og skemmdum sem geta haft áhrif á verðmæti eignar. Nákvæm skýrsla með myndum og faglegum útskýringum (ef óskað er). Möguleiki á að nýta niðurstöður til að endurmeta kaupverð eða styrkja stöðu í samningum.

Gott að vita: Við mælum alltaf með að kaupsamningar séu gerðir með fyrirvara um ástandsskoðun til að lágmarka áhættu og forðast óvæntan kostnað.

Ástandsskoðun FasteignaEiningVerð
Íbúðarhúsnæði 1-100m² án skýrsluStk.100.000 kr.
Íbúðarhúsnæði 1-100m² með skýrsluStk.160.000 kr.
Íbúðarhúsnæði 101-200m² án skýrsluStk.130.000 kr.
Íbúðarhúsnæði 101-200m² með skýrsluStk.190.000 kr.
Íbúðarhúsnæði 201-300m² án skýrsluStk.160.000 kr.
Íbúðarhúsnæði 201-300m² með skýrsluStk.220.000 kr.
Íbúðarhúsnæði 301-401m² án skýrsluStk.190.000 kr.
Íbúðarhúsnæði 301-401m² með skýrsluStk.250.000 kr.
Fjölbýli/sameignirStk.Tilboð
Atvinnuhúsnæði 1-300m² án skýrsluStk.190.000 kr.
Atvinnuhúsnæði 1-300m² með skýrsluStk.250.000 kr.
Atvinnuhúsnæði yfir 301m²Stk.Tilboð
KostnaðarmatStk.75.000 kr.

SérvinnaEiningVerð
Tímagjald/sérvinnaKlst.24.800 kr.
Skýrslugerð m. ítarlegum upplýsingumKlst.24.800 kr.
Akstur utan höfuðborgarsvæðisinskr/km.186 kr.
Yfirvinnuálag**%+0.45%

**Verð miðast við að vinna sé framkvæmd á hefðbundnum dagvinnutíma, þ.e. virka daga frá kl. 09:00 til 16:00.
Fyrir verk sem fara fram utan þessa tíma, á kvöldin, um helgar eða á frídögum, bætist yfirvinnuálag við tímagjaldið samkvæmt gildandi verðskrá.

Komdu í veg fyrir ágreining með faglegri skýrslu og skjalfestingu

Við bjóðum upp á ástandsskoðun á leiguhúsnæði bæði við upphaf og lok leigusamnings. Slík skoðun tryggir báðum aðilum, bæði leigjanda og leigusala, skýra yfirsýn yfir ástand eignarinnar og dregur úr hættu á misskilningi eða ágreiningi.

Þjónustan felur í sér:

• Skoðun á öllum rýmum og skráningu á skemmdum eða göllum.
• Myndir eða myndbönd til að styðja niðurstöður.
• Ítarlega skýrslu sem hægt er að nota í samningum.

Þessi þjónusta hentar jafnt einstaklingum, húsfélögum sem og leigumiðlunum sem vilja tryggja gagnsæi og faglega skjalfestingu í leigusamböndum.

Ástandsskoðun LeiguhúsnæðisEiningVerð
Ástandsskoðun fyrir leiguhúsnæði 1-100m²Stk.40.000 kr.
Ástandsskoðun fyrir leiguhúsnæði 101-200m²Stk.50.000 kr.
Ástandsskoðun fyrir leiguhúsnæði 201-300m²Stk.60.000 kr.
Ástandsskoðun fyrir leiguhúsnæði yfir 301m²Stk.Tilboð
Ástandsskoðun við skil leiguhúsnæðis 1-100m²Stk.50.000 kr.
Ástandsskoðun við skil leiguhúsnæðis 101-200m²Stk.60.000 kr.
Ástandsskoðun við skil leiguhúsnæðis 201-300m²Stk.70.000 kr.
Ástandsskoðun við skil leiguhúsnæðis yfir 301m²Stk.Tilboð
Tjónaskoðun og kostnaðarmat á tjóni fyrir leiguhúsnæði 1-100m²Stk.75.000 kr.
Tjónaskoðun og kostnaðarmat á tjóni fyrir leiguhúsnæði 101-200m²Stk.85.000 kr.
Tjónaskoðun og kostnaðarmat á tjóni fyrir leiguhúsnæði 201-300m²Stk.95.000 kr.
Tjónaskoðun og kostnaðarmat á tjóni fyrir leiguhúsnæði yfir 301m²Stk.Tilboð

SérvinnaEiningVerð
Tímagjald/sérvinnaKlst.24.800 kr.
Akstur utan höfuðborgarsvæðisinskr/km.186 kr.
Yfirvinnuálag**%+0.45%

Ef samanlagður vinnu- og aksturstími fer yfir 3 klukkustundir, leggst viðbótartímagjald á samkvæmt gildandi verðskrá.
Sé óskað eftir skriflegri skýrslu, er hún unnin samkvæmt tímagjaldi og innheimt sérstaklega.
**Verð miðast við að vinna fari fram á virkum dögum frá kl. 09:00–16:00.
Fyrir þjónustu utan dagvinnutíma (kvöld, helgar eða frídaga) bætist yfirvinnuálag við tímagjaldið samkvæmt verðskrá.

Verndaðu eign þína og heilsu með sérhæfðri skoðun og greiningu

Raki og mygla eru algeng vandamál sem geta valdið miklum skemmdum á fasteignum og ógnað heilsu íbúa. Með réttri greiningu og skjótum viðbrögðum má draga úr tjóni og forðast dýrar viðgerðir síðar.

Við notum háþróuð mælitæki, þar á meðal rakamæla og hitamyndavélar, til að greina rakavandamál og mögulega myglu, bæði sýnilega og falda.

Veldu skoðun sem hentar þér:

Án skýrslu:

Einföld munnleg skoðun þar sem við förum yfir helstu atriði og gefum faglega ráðgjöf.

Með skýrslu:

Ítarleg skoðun með ljósmyndum, tillögum að úrbótum og skýrslugerð sem nýtist í samningsferli eða sem hluti af ástandsmati fasteignar.

Þjónustan felur í sér:

• Myglupróf og sýnatöku til greiningar á örverum (ef óskað er).
• Tillögur að úrbótum og mögulegum kostnaðaráætlunum.
• Skýrslugerð sem nýtist í fasteignaviðskiptum, tryggingamálum eða viðgerðaráætlun (ef óskað er).

Raka- & MygluskoðunEiningVerð
Grunngjald án skýrslu*Stk.75.000 kr.
Tímagjald/sérvinnaKlst.24.800 kr.
Myglupróf Pro-Clean (á staðnum)Stk.5.500 kr.
Sýnataka fyrir myglugreininguStk.3.500kr.
Greining á sýnumStk.Skv. verðskrá NÍ
Umsýsla sýnaStk.5.000 kr.

SérvinnaEiningVerð
Tímagjald/sérvinna*Klst.24.800 kr.
Skýrslugerð m. ítarlegum upplýsingumKlst.24.800 kr.
Akstur utan höfuðborgarsvæðisinskr/km.186 kr.
Yfirvinnuálag**%+0.45%
LoftgæðamælingVika25.000 kr.

AukabúnaðurEiningVerð
Hlífðargalli – einnotaStk.3.500 kr.
RykgrímaStk.1.000 kr.

*Ef samanlagður vinnu- og aksturstími fer yfir 3 klukkustundir, leggst viðbótartímagjald á samkvæmt gildandi verðskrá.
Sé óskað eftir skriflegri skýrslu, er hún unnin samkvæmt tímagjaldi og innheimt sérstaklega.
**Verð miðast við að vinna fari fram á virkum dögum frá kl. 09:00–16:00.
Fyrir þjónustu utan dagvinnutíma (kvöld, helgar eða frídaga) bætist yfirvinnuálag við tímagjaldið samkvæmt verðskrá.

Tryggðu öruggt umhverfi fyrir heimilið þitt eða fyrirtækið

Öryggisskoðun metur veikleika í eignum og kemur með tillögur til að draga úr innbrotahættu.

Af hverju að velja öryggisskoðun?

• Kortleggjum veikleika og gerum tillögur að lausnum.
• Hjálpum við forgangsröðun úrbóta.
• Tryggjum aukið öryggi fyrir heimili og eignir.

LýsingEiningVerð
Innbrota- og öryggisskoðun (grunngjald án skýrslu)*Verð frá75.000 kr.
Tímagjald/sérvinnaStk.24.800 kr.

*Athuga ber að fari heildartími ásamt akstri yfir 3 klst. bætist við tímagjald skv. verðskrá.Sé óskað eftir skýrslu er innheimt samkvæmt tímagjaldi. 

Fáðu skýra mynd af framtíðarkostnaði og framkvæmdum

Kostnaðarmat er lykilverkfæri fyrir þá sem vilja gera raunhæfar áætlanir um viðhald, endurbætur eða framkvæmdir.
Við veitum heildaryfirsýn yfir kostnað sem tengist viðgerðum, viðhaldi eða framkvæmdum, hvort sem þú ert einstaklingur, fasteignaeigandi eða verktaki.

LýsingEiningVerð
GrunngjaldStk.85.000 kr.
Tímagjald/sérvinnaStk.24.800 kr.

Fagleg stjórnun og eftirlit – fyrir öruggar og skilvirkar framkvæmdir

Byggingarstjórar A Fagmenn tryggja að framkvæmdir fari fram samkvæmt lögum, reglugerðum og gæðakröfum. Með faglegri verkefnastjórnun, stöðugu eftirliti og skýrum samskiptum lágmörkum við áhættu og tryggjum árangursríkt verkferli, frá upphafi til verkloka.

Þjónustan felur í sér:

• Samskipti við verkkaupa, skráningu verks og upphafsgreiningu.
• Reglulegt eftirlit á verkstað til að tryggja gæði og öryggi.
• Skýrslur um framvindu framkvæmda og áfangaskýrslur. 

Verð og viðmiðunargrundvöllur

Hjá A Fagmenn leggjum við metnað í að veita faglega þjónustu á sanngjörnu verði.
Verð eru aðlöguð umfangi og eðli hvers verkefnis, en við bjóðum einnig upp á viðmiðunarverð sem nýtist sem grunnur að kostnaðaráætlunum.

Verðin byggjast á brúttó fermetrum byggðs flatar og henta vel til foráætlana fyrir húsfélög, einstaklinga og verktaka sem vilja skýra kostnaðaryfirsýn áður en framkvæmdir hefjast.

ByggingastjórnStærð VerksVerð
Umsjón með framkvæmdum –
Lögbundið eftirlit & skipulagning
á framkvæmdum
(óháð
stærð)
Frá 450.000 kr.
(lágmarkskostnaður)
óháð umfangi verks.
Umsjón með framkvæmdum –
Lögbundið eftirlit & skipulagning
á framkvæmdum
(<100m²)23.000 kr. á m² –
aldrei undir 4,5% af
byggingarkostnaði.
Umsjón með framkvæmdum –
Lögbundið eftirlit & skipulagning
á framkvæmdum
(100-
1000m²)
17.000 kr. á m² –
minnst 3,5% af
byggingarkostnaði.
Umsjón með framkvæmdum –
Lögbundið eftirlit & skipulagning
á framkvæmdum
(>1000m²)10.000 kr. á m² –
að lágmarki 2,5% af
byggingarkostnaði.

VerkefnastjórnunStærð VerksVerð
Skipulag og eftirfylgni –
Utanumhald verkáætlunar, verkliða og kostnaðar
(<100m²)23.000 kr. á m² –
Lágmark 15%
af heildarkostnaði.
Skipulag og eftirfylgni –
Utanumhald verkáætlunar, verkliða og kostnaðar
(100-
500m²)
18.000 kr. á m² –
minnst 12%
af heildarkostnaði.
Skipulag og eftirfylgni –
Utanumhald verkáætlunar, verkliða og kostnaðar
(>500m²)15.000 kr. á m² –
að lágmarki 9%
af heildarkostnaði.

Verð fyrir skoðun byggingarstjóra

Tímagjald 24.800kr. með vsk. á klst.
Fyrir hverja skoðun er rukkað að lágmarki 2 klst., þar sem í gjaldinu er tekið tillit til bæði skoðunartíma og ferðatíma til og frá verkstað.

Sértilboð fyrir stærri framkvæmdir

Sérsniðin þjónusta fyrir flóknari og umfangsmeiri verkefni

Við bjóðum sérsniðin tilboð fyrir stærri framkvæmdir þar sem taka þarf mið af fleiri verkþáttum, fjölbreyttum aðstæðum og sérhæfðri þekkingu. Með reynslu og skipulagi tryggjum við að verkefnið fari rétt af stað – og rétta leið alla leið.

Hafðu samband og fáðu ókeypis ráðgjöf eða verðhugmynd fyrir þitt verkefni.


Með fagmennsku, skipulagi og öryggi – hjálpum við þér að hrinda framkvæmdum í framkvæmd.

Verðskrá er með virðisaukaskatti.
◦ Verð miðast við stærð skv. fasteignaskrá.
◦ Verð innihalda ekki byggingastjóra- eða ábyrgðartryggingar nema annað sé sérstaklega tekið fram. Sé verkefni utan höfuðborgarsvæðisins leggst akstursgjald við og kemur fram á reikningi.

Innifalið í þjónustu:
◦ Skráning verks og samskipti við verkkaupa.
◦ Skoðun á verkstað.
◦ Nauðsynleg verkfæri og hlífðarbúnaður fyrir hefðbundna ástandsskoðun.
◦ Ferðatími innan höfuðborgarsvæðis.

Greitt er aukalega fyrir eftirfarandi:
◦ Sérvinnuliðir, s.s. ítarleg þakskoðun, sýnataka vegna gruns um örveruvöxt eða önnur sérvinna (skv. verðskrá).
◦ Tækjagjald – Dróni/flygildi – Grunngjald : 20.000 kr.
◦ Körfubíll – skv. reikningi.
◦ Tímagjald – skv. verðskrá, (sé óskað eftir sérvinnu).
◦ Ferðatími utan höfuðborgarsvæðis skv. verðskrá.
◦ Kílómetragjald utan höfuðborgarsvæðis skv. verðskrá.

◦ Hægt er að óska eftir rakamælingu, hitamyndun eða sýnatöku vegna gruns um örveruvöxt ef um afmarkað svæði byggingar er að ræða.
◦ Athugið að ofangreind vinna fellur undir sérvinnu.

Sérfræðiþekking:
Faglegt og hlutlaust mat í öllum verkefnum.

Gagnsæi:
Ítarleg skýrslugerð með myndum og lýsingum.

Skilvirkni:
Við tryggjum hraðvirka og áreiðanlega þjónustu.

Við hjálpum þér að taka réttar ákvarðanir í fasteignaviðskiptum.

Hafðu samband og bókaðu tíma!

Pósti er yfirleitt svarað innan 2-3 virkra daga
Netfang: ( afagmenn@gmail.com )

Mánudaga – föstudaga 09:00 – 16:00
Sími: ( 888-3888 )